Osmín
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rúþen | |||||||||||||||||||||||||
Renín | Osmín | Iridín | |||||||||||||||||||||||
Hassín | |||||||||||||||||||||||||
|
Osmín er frumefni með efnatáknið Os og er númer 76 í lotukerfinu. Þetta er harður, stökkur, grá-blár eða svart-blár hliðarmálmur sem tilheyrir platínuflokknum og hefur hæstu eðlisþyngd allra náttúrulegra frumefna.
Efnisyfirlit |
[breyta] Almenn einkenni
Osmín í málmformi er gríðarlega eðlisþungur. Það er gráblátt eða svarblátt, stökkt og gljáandi, jafnvel við hátt hitastig, en er erfitt í framleiðslu. Auðveldara er að framleiða osmín í duftformi, en ef það kemst í snertingu við loft myndar það osmín tetroxíð (OsO4), sem er eitrað. Oxíðið er einnig öflugt oxandi efni, gefur frá sér sterka lykt og sýður við 130°C.
Sökum gríðarlega hás eðlismassa, er osmín yfirleitt talið vera þyngsta þekkta frumefnið, rétt þyngra en iridín.
Þessi málmur hefur hæsta bræðslumark og lægsta gufuþrýsting allra efna í platínuflokknum. Algeng oxunarstig osmíns eru +3 og +4, en fundist hafa oxunarstig frá +1 til +8.
[breyta] Notkun
Sökum gríðarlega eituráhrifa oxíðs þess, er osmín sjaldan notað í hreinu formi, og er í staðinn oft blandað saman við aðra málma sem notaðir eru svo í slitþolna hluti. Osmínmálmblöndur eru gríðarlega harðar og ásamt öðrum platínuflokksmálmum næstum eingöngu notað í odda á lindarpennum, plötuspilaranálar, kúluvölur og rafsnerta.
Osmín tetroxíð hefur verið notað í fingrafarsgreiningu og til að lita fituvefi á sýnisglerum smásjáa. Blanda 90% platínu og 10% osmíns er notað í ígræðslur, eins og til dæmi hjartagangráða og staðgengla fyrir lungnaslagæðalokur.
Tetroxíðið (og skylt efnasamband, kalínosmat) eru mikilvægir oxarar í efnasmíði.
[breyta] Saga
Osmín (gríska osme sem þýðir „lykt“) var uppgötvað árið 1803 af Smithson Tennant í London í Englandi, ásamt iridíni í leifum upplausnar platínu í kóngavatni.
[breyta] Tilvist
Þessi hliðarmálmur finnst í iridosmíni, sem að er náttúruleg málmblanda iridiíns og osmíns, og í platínuríku straumvatnsseti í Úralfjöllum, og Norður- og Suður-Ameríku. Það finnst einnig í nikkelgrýti við Sudbury, Ontario ásamt öðrum málmum í platínuflokknum. Jafnvel þó að upphæð platínumálma í þessu grýti sé lítil, gerir stór upphæð nikkelgrýtis sem unnið er með, hagkvæmt að vinna þessa málma úr því.
[breyta] Efnasambönd
Osmín tetroxíð (OsO4)
[breyta] Samsætur
Osmín hefur sjö náttúrulegar samsætur, og af þeim eru 5 stöðugar: Os-187, Os-188, Os-189, Os-190, og (algengust) Os-192. Os-184 og Os-186 hafa ótrúlega langan helmingunartíma og er almennt hægt að telja þær því stöðugar líka. Os-187 er dótturkjarni Re-187 (helmingunartími 4,56×1010 ár) og er oft mælt í hlutfalli Os-187/Os-188. Þetta hlutfall, ásamt hlutfalli Re-187/Os-187, hefur verið víða notað til að aldursgreina jarðneskt grjót, og einnig grjót úr loftsteinum. Það má þó geta þess, að mest þekktu not osmíns í aldursgreiningu efna hefur verið saman með iridíni, til að aldursgreina ákveðin leirlög sem merkja þann tíma er risaeðlurnar dóu út fyrir 65 milljón árum síðan.
[breyta] Varúðarráðstafanir
Osmín tetroxíð er baneitrað efni. Þéttleiki osmíns í lofti, allt niður að 10-7 g/m³, getur valdið lungnateppu, húð- eða augnskemmdum.