Kaliningrad
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kaliningrad er rússnesk borg við Eystrasalt. Hún og samnefnt hérað í kring liggja milli Litháens og Póllands, en eru aðskilin frá afgangnum af Rússlandi af Eystrasaltslöndunum og Hvíta-Rússlandi. Borgin, sem lengst af hét Königsberg, var stofnuð á miðöldum af Þýsku (tevtónsku) riddurunum, var prússnesk fram til sameiningar Þýskalands árið 1871 og eftir það þýsk fram til loka Síðari heimsstyrjaldar, en var þá hertekin af Rauða hernum og hefur verið undir yfirráðum Sovétmanna, síðar Rússa, æ síðan. Hún var endurnefnd árið 1946 eftir Mikhaíl Kalínín (1875 - 1946), forseta Æðsta ráðs Sovétríkjanna, sem lést það ár.