Fridtjof Nansen
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fridtjof Wedel-Jarlsberg Nansen (f. 10. október 1861 - d. 13. maí 1930) var norskur landkönnuður og vísindamaður. Hann fékk friðarverðlaun Nóbels 1922. Hér á landi er Fridtjof stundum nefndur Friðþjófur Nansen.
Nansen gegndi ýmsum stöðum um ævina. Var hann m.a. prófessor í dýrafræði og haffræði við Háskólann í Osló og var einn af þeim sem lögðu grunninn að nútíma taugafræði. Hann var einnig um tíma sendiherra Noregs í Bretland og var nefndur sem mögulegur forseti Noregs ef Norðmenn hefðu ekki tekið upp konungsríki þegar þeir slitu sambandi sínu við Svíþjóð 1905.
[breyta] Ýmsir virðingaraukar
- Norski herinn nefndi eina tegund freigátna sinna eftir Nansen
- Gígur á tunglinu og annar á mars er nefndur eftir Nansen
- Loftsteinninn 853 Nansenia er nefndur í höfuðið á honum
- Nansenfjall á Suðurskautslandinu er nefnt í höfuðið á honum.
- Götur í a.m.k. 5 löndum er nefndar eftir Nansen.