Ystingur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ystingur (eða ostefni) er mjög prótínríkt efni í mjólkurvörum sem verður til við það mjólk er yst (eða hleypt) með ensímum eða vægri sýru (t.d. matarediki eða sítrónusýru) þannig að prótínin kekkjast og skilja sig frá mysunni í mjólkinni.
Ystingur er t.d. notaður í kotasælu, osta og fleira. Stundum er hann notaður beint til matargerðar. Hið ljúffenga, ungverska sælgæti Túró Rudi er með fyllingu úr bragðbættum ystingi.