Willem Barents
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Willem Barents (~1550 – 20. júní 1597) var hollenskur landkönnuður, frægur fyrir könnunarleiðangra sína til Norður-Íshafsins. Takmark hans var að finna norðausturleiðina frá Evrópu til Austur-Asíu. Á ferðum sínum sá hann meðal annars Svalbarða og Bjarnarey. Hann gerði þrjár árangurslausar tilraunir frá árinu 1594 til 1597 og lést sjálfur í síðustu ferðinni eftir að þeir höfðu setið fastir í ísnum fyrir norðan Novaja Semlja og verið þannig fyrstir manna til að eyða heilum vetri á Norðurheimskautsvæðinu.
Barentshaf heitir eftir honum.