Vestur-Landeyjahreppur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestur-Landeyjahreppur var hreppur í Landeyjum í Rangárvallasýslu, milli Hólsár og Affalls.
Hinn 9. júní 2002 sameinaðist Vestur-Landeyjahreppur Hvolhreppi, Fljótshlíðarhreppi, Austur-Landeyjahreppi, Vestur-Eyjafjallahreppi og Austur-Eyjafjallahreppi undir nafninu Rangárþing eystra.