Veðurathugun
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Veðurathugun er kerfisbundin mæling á ýmsum veðurþáttum á fyrirfram ákveðnum veðurathugunartímum, oftast framkvæmd á veðurathugunarstöð. Mannaðar veðurathuganir eru gerðar á þriggja klukkustunda fresti og veðurathugunarmaður mælir loftþrýsting, vindhraða, skyggni, þurran og votan hita, skráir skýjafar og veður og sjávarstöðu á þeim stöðvum sem liggja nærri sjó. Hámarks- og lágmarkshiti er mældur einu sinni á sólarhring. Einnig er úrkomumagn (og snjóhula ef snjór er á jörðu) mæld einu sinni til tvisvar á sólarhring. Sjálfvirkar veðurathuganir eru gerðar á sérhverri klukkustund, en skýjafar og veður er ekki skráð sjálfvirkt og ekki heldur úrkomumagn, snjóhula né sjávarstaða. Veðurstofa Íslands framkvæmir veðurathuganir á veðurathugunarstöðvum víða um land.