Vélbátur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vélbátur eða mótorbátur er bátur sem er knúinn áfram af vél með skrúfu. Vélbátar geta verið allt frá litlum opnum skeljum með litla díselvél innanborðs eða utanborðsmótor að 500 feta risasnekkjum.
Hraðbátur er lítill vélbátur sem er hannaður til að ná sem mestum hraða. Keppt er á hraðbátum í hraðbátakeppni og spyrnukeppni á hraðbátum og gúmmíbátum.
Á Íslandi hófst vélbátaútgerð uppúr aldamótunum 1900 og var í fyrstu stunduð á opnum bátum eða skútum sem sett var vél í en síðar á trillum og stærri skipum.