Steingrímur Arason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Steingrímur Arason kennari fæddist 26. ágúst 1879 og andaðist 13. júlí 1951. Hann stundaði gagnfræðanám við Möðruvallaskóla og síðan kennaranám í Flensborg og lauk kennaraprófi árið 1908. Einnig stundaði hann framhaldsnám í Bandaríkjunum. Hann starfaði við kennslu barna og unglinga í Eyjafirði og Reykjavík en aðalkennslustörf hans voru við Kennaraskólann þar sem hann kenndi í 20 ár. Hann var ritstjóri Unga Íslands og formaður Barnavinafélagsins Sumargjöf fyrstu 15 árin sem það félag starfaði.
Aðalkennslugrein hans við Kennaraskólann var æfingakennsla og var hann fyrsti æfingakennari í smábarnakennslu. Hann þýddi margar barnabækur og tók saman þessar barnabækur fyrir ung börn:
- Litla gula hænan
- Ungi litli
- Helga í öskustónni
- Jón og Gunna
[breyta] Heimild:
- Samantekt Freysteins Gunnarssonar um Steingrím Arason á baksíðu Litlu gulu hænunnar, gefin út af Námsgagnastofnun árið 1970.