Stöng (bær)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stöng er bær í Þjórsárdal sem Gaukur Trandilsson bjó í á 10. öld. Talið er að bærinn hafi farið í eyði árið 1104 eftir mikið öskugos í Heklu. Þá er talið að byggð í Þjórsárdal hafi alveg lagst af, jafnt á Stöng, Skeljastöðum, sem var framar í dalnum, og fjölda annarra bæja. Árið 1939 var Stangarbærinn grafinn upp og byggt yfir hann svo fólk geti áttað sig á búsháttum á þessum tíma.
Í tilefni af 1.100 ára afmæli byggðar á Íslandi 1974 var ákveðið að byggja Þjóðveldisbæinn undir Sámsstaðamúla, en hann er eftirlíking Stangarbæjarins.
Gaukur á Stöng hét einnig skemmtistaður við Tryggvagötu í Reykjavík.