Skutulsfjörður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skutulsfjörður er stysti og vestasti fjörðurinn í Ísafjarðardjúpi. Kaupstaðurinn Ísafjörður stendur við fjörðinn. Tveir megindalir ganga inn úr Skutulsfirði, Engidalur og Tungudalur, og skilur fjallið Kubbi þá að. Í Engidal er kirkjugarður Ísfirðinga, sem og sorpbrennslustöð þeirra. Golfvöllur og skíðasvæði er í Tungudal en úr honum eru Vestfjarðargöng grafin yfir í Botnsdal í Súgandafirði og Breiðdal í Önundarfirði. Upp úr Tungudal ganga Dagverðardalur eða Dögurðardalur, sem segir frá í Gísla sögu, en þaðan lá áður þjóðvegurinn suður yfir Breiðadals- og Botnsheiði. Enn fremur liggur Seljalandsdalur upp af Skutulsfirði en þar var áður aðalskíðasvæði Ísfirðinga.
Árið 1994 féll snjóflóð í Seljalands- og Tungudali og eyðilögðust skíðamannvirki og sumarbústaðir.
[breyta] Heimildir
- Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson. Landið þitt Ísland, A-G. Örn og Örlygur, 1980.
- Steindór Steindórsson frá Hlöðum (höfundur frumtexta), Örlygur Hálfdanarson (ritstj.). Vegahandbókin: ferðahandbókin þín. Stöng, 2004. ISBN 9979956933