Sigfús Daðason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sigfús Daðason (20. maí 1928 – 12. desember 1996) var íslenskt ljóðskáld.
Sigfús lauk námi við Menntaskólann í Reykjavík árið 1951, sama ár og fyrsta ljóðabók hans kom út, Ljóð. Hann hélt til Parísar, þar sem hann lagði stund á latínu og bókmenntafræði og lauk þar námi árið 1959. Hann var meðritstjóri Tímarits Máls og menningar frá árinu 1962-76 og framkvæmdastjóri bókaútgáfu Máls og menningar frá 1971-76. Hann kenndi við Háskóla Íslands. Sigfús lést á Landspítalanum 12. desember árið 1996.
[breyta] Verk
- Ljóð (1951)
- Hendur og orð (1959)
- Fáein ljóð (1977)
- Útlínur bak við minnið (1987)
- Maðurinn og skáldið (1987) - bók um Stein Steinarr
- Province í endursýn (1992)
- Og hugleiða steina (1955)