Samsæta
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Í efnafræði eru samsætur (ísótóp) ólíkar gerðis sama frumefnis, þar sem fjöldi róteinda í frumeind er sá sami (og því kallast það enn sama frumefnið) en fjöldi nifteinda er mismunandi og því massatalan ólík. Samsætur vetnis eru t.d. 1H1, 2H1 og 3H1, þar sem upphöfðu tölurnar tákna fjölda kjarnagna (massatölu), en hnévísirinn táknar fjólda róteinda (sætistölu).