Samlífi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Samlífi er í vistfræði víxlverkun tveggja lífvera hver á aðra. Hugtakið hýsill er venjulega notað yfir stærri lífveruna en sambýlingur yfir þá minni. Samlífi má skipta í tvo flokka: innanfrumusamlíf og utanfrumusamlíf.
[breyta] Gerðir samlífis
- Sníkjulífi: Samlífi sem er óhagstætt annarri lífverunni en hagstætt hinni (+ -).
- Samhjálp: Samlífi sem er hagstætt báðum lífverunum (+ +).
- Gistilífi: Samlífi sem er hagstætt annarri lífverunni en hefur ekki áhrif á hina (+ 0).
- Ójöfn samkeppni: Samlífi sem er óhagstætt annarri lífverunni en hefur ekki áhrif á hina (- 0).