Sólarorka
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sólarorka er orka frá sólinni.
Þessi orka er öll á formi rafsegulgeislunnar og er með litróf frá innrauðri upp í útfjólubláa geislun.
Sólarorkan er aðal orkugjafi jarðarinnar og fær jörðin u.þ.b. 176 petavött í efri lög andrúmsloftsins en aðeins um helmingur þessarar orku nær niður til jarðarinnar, restin er gleypt í andrúmsloftið eða endurkastað aftur út í geiminn.
Síðustu ár hafa menn reynt að breyta sólarorkunni í nýtanlega orku sem við getum geymt og ráðskast með, til þess notum við sólrafal.