Andrúmsloft
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Andrúmsloft eða lofthjúpur er hjúpur samsettur úr gasi, ryki, vökvum og ís sem umlykur jörð og suma himinhnetti og fylgir hreyfingum þeirra vegna áhrifa þyngdarsviðs. Veður stafar af innbyrðis skammtímabreytingum á ástandi lofthjúps, en langtímabreytingar nefnast loftslag. Andrúmsloft jarðar kallast einnig gufuhvolf.