Neil Armstrong
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Neil Armstrong (fæddur 5. ágúst 1930) er fyrrverandi bandarískur geimfari og flugmaður. Hann er frægastur fyrir að hafa verið fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið. Það gerði hann í annarri og síðust geimferð sinni, með Apollo 11 þann 20. júlí 1969. Hann varði, ásamt Buzz Aldrin tveimur og hálfri klukkustund á yfirborði tunglsins á meðan Michael Collins var á sporbraut fyrir ofan.