Miðfjörður (Bakkaflóa)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Miðfjörður er stuttur fjörður í Norður-Múlasýslu. Hann er einn þriggja smáfjarða, sem ganga inn úr Bakkaflóa, og liggur hann á milli Finnafjarðar og Bakkafjarðar. Töluvert æðarvarp er í Miðfirði.