Logi Ólafsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Logi Ólafsson (14. nóvember 1954) er íslenskur knattspyrnuþjálfari og núverandi þjálfari Knattspyrnufélags Reykjavíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Logi hefur verið þjálfari frá árinu 1987, en þá þjálfaði hann kvennalið Vals í tvö ár. Hann þjálfaði síðan Víkinga frá 1990 til 1992 og gerði liðið að Íslandsmeisturum árið 1991. Þá þjálfaði hann Íslenska kvennalandsliðið á árunum 1993-1994 og fór síðan til Skagamanna árið 1995 og gerði liðið að Íslandsmeisturum. Á árunum 1996-1997 stýrði hann Íslenska landsliðinu. Hann tók aftur við liði ÍA árin 1997-1998.
Logi stýrði FH-ingum til sigurs í 1. deild árið 2000 og var þar til 2001. Á sama tíma stjórnaði hann kvennalandsliðinu. Árið 2001 varð hann aðstoðarþálfari Lilleström og tók síðan við Íslenska landsliðinu árið 2003 og var þar til ársins 2005 með Ásgeiri Sigurvinssyni.[1]
Logi hefur um nokkurt skeið verið íþróttakennari við Menntaskólann við Hamrahlíð.[2]
[breyta] Heimildir
- ↑ http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=50258
- ↑ http://mh.is/?m=mmod_mh&f=getStaffPerson&id=68
Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Núverandi lið |
---|
1 Kristján | 2 Grétar Sigfinnur | 3 Pétur | 4 Gunnlaugur | 5 Kristinn | 6 Jónas Guðni | 7 Guðjón | 8 Atli Jóhanns. | 9 Óskar Örn | 10 Björgólfur | 11 Grétar Ólafur | 12 Ingimundur | 14 Viktor | 15 Skúli Jón | 16 Einar Bjarni | 17 Ásgeir Örn | 20 Gunnar Örn | 21 Guðmundur Reynir | 22 Stefán Logi | 23 Vilhjálmur Darri | 24 Guðmundur Pétursson | 25 Eggert | 26 Skúli Jónsson | 27 Davíð | Diogo | Stjóri: Logi |