Laugavegur (gönguleið)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Laugavegurinn kallast gönguleiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Er hún um 54km löng og fer hæst í um 1050 m.y.s. við Hrafntinnusker. Leiðin er afar vinsæl meðal innlendra sem erlendra göngumanna enda þykir hún ægifögur og bjóða upp á brot af flestu því sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.
Áfangar á gönguleiðinni eru látnir ráðast af skálum sem á henni er. Ef gengið er frá Landmannalaugum eins og algengast er verður fyrst á vegi manna skálinn í Hrafntinnuskeri, svo Álftavatni, Hvanngili og Emstrum (Botnum), en allir skálarnir eru í eigu Ferðafélags Íslands. Endar gönguleiðin í Þórsmörk þar sem gengið er í Húsadal, Langadal eða Bása (í Goðalandi). Algengast er að skipta leiðinni upp í 3-4 dagleiðir þó svo það sé stundað að hlaupa leiðina á allt frá 5 tímum.