Laugarvatn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hnit: 64°12.60′ N 20°46.94′ V
Laugarvatn er stöðuvatn í Laugardal í Bláskógabyggð, en við vatnið stendur samnefnt þorp. Vatnið er grunnt, mesta dýpi er um 5 metrar, og fullt af gróðri og við það er heit [[laug].]Hermt er að sumir heiðingjar hafi eftir kristnitöku árið 1000 verið skýrðir í þessri laug og hún kölluð Vígðalaug. En þar voru lík Jóns Arasonar, biskups og sona hans voru þvegin er þau voru flutt frá Skálholti norður yfir heiðar eftir aftöku þeirra í nóvember 1550.
Á Laugarvatni eru meðal annars Menntaskólinn að Laugarvatni og Íþróttakennaraskóli Íslands. Áður var það héraðsskóli, og stendur skólahúsið enn uppi að hluta.
Að Laugarvatni er menntaskóli og hefur myndast þorp í kringum hann. Þar eru tvö Edduhótel og skipulagt tjaldsvæði með þjónustumiðstöð. Þar, sem víða í uppsveitum Árnessýslu, er jarðhiti mikill og því góð baðastaða í og við Laugarvatn er m.a. sundlaug og gufubað. Í nágrenni Laugarvatns hefur risið mikil sumarbústaðabyggð og eiga mörg stéttarfélög bústaði þar sem og einstaklingar. Skóglendi er mikið og víðlent og fallegar ár og lækir renna þar um.