See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Landnámsmenn í Sunnlendingafjórðungi - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Landnámsmenn í Sunnlendingafjórðungi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Landnámsmenn í Sunnlendingafjórðungi og landnám þeirra. Listinn fylgir upptalningu Landnámabókar sem byrjar á Ingólfi Arnarsyni í Reykjavík og telur þaðan réttsælis um landið.

  • Ingólfur Arnarson nam land milli Ölfusár og Brynjudalsár í Hvalfirði og öll nes út. Hann bjó í Reykjavík.
  • Vífill, þræll Ingólfs. Ingólfur gaf honum frelsi og land og bjó hann á Vífilsstöðum.
  • Þórður skeggi Hrappsson nam land með ráði Ingólfs milli Úlfarsár og Leiruvogs og bjó á Skeggjastöðum.
  • Hallur goðlaus Helgason nam land með ráði Ingólfs milli Leiruvogs og Mógilsár
  • Helgi bjóla Ketilsson nam Kjalarnes milli Mógilsár og Mýdalsár og bjó að Hofi.
  • Örlygur gamli Hrappsson nam land með ráði Helga bjólu frá Mógilsá til Ósvífurslækjar og bjó að Esjubergi.
  • Svartkell nam land milli Mýdalsár og Eilífsdalsár, bjó fyrst á Kiðafelli en síðan á Eyri.
  • Valþjófur Örlygsson nam Kjós og bjó á Meðalfelli.
  • Hvamm-Þórir, nam land milli Laxár og Fossár og bjó í Hvammi.
  • Þorsteinn Sölmundarson nam land milli Fossár og Botnsár.
  • Ávangur byggði fyrst í Botni í Hvalfirði.
  • Kolgrímur gamli Hrólfsson nam Hvalfjarðarströnd frá Botnsá til Kalmannsár og bjó á Ferstiklu.
  • Þormóður gamli Bresason nam land á Akranesi sunnan Reynis til Kalmannsár og bjó á Innri-Hólmi.
  • Ketill Bresason nam land á Akranesi vestan Reynis til Urriðaár.
  • Bekan fékk land í landnámi Ketils milli Berjadalár og Urriðaár. Hann bjó á Bekansstöðum.
  • Finnur auðgi Halldórsson nam land sunnan Laxár að Kalmannsá og bjó á Miðfelli.
  • Hafnar-Ormur nam Melasveit frá Laxá að Andakílsá og bjó í Höfn.
  • Grímur háleyski Þórisson fékk land af Skalla-Grími milli Andakílsár og Grímsár. Hann bjó á Hvanneyri.
  • Þorbjörn svarti keypti land af Hafnar-Ormi frá Seleyri til Fossár. Hann bjó á Skeljabrekku.
  • Skorri, leysingi Ketils gufu, nam Skorradal fyrir ofan vatn.
  • Björn gullberi nam Lundarreykjadal milli Grímsár og Flókadalsár. Hann bjó á Gullberastöðum.
  • Þorgeir meldún fékk lönd af Birni ofan Grímsár og bjó í Tungufelli.
  • Flóki, leysingi Ketils gufu, nam Flókadal milli Flókadalsár og Geirsár. Hann bjó í Hrísum.
  • Ólafur hjalti nam land að ráði Skalla-Gríms milli Grímsár og Geirsár og bjó að Varmalæk.
  • Ketill blundur nam land að ráði Skalla-Gríms milli Flókadalsár og Reykjadalsár upp að Rauðsgili. Hann bjó í Þrándarholti.
  • Geir auðgi Ketilsson, sonur Ketils blunds, bjó í Geirshlíð í Flókadal.
  • Önundur breiðskeggur nam alla tunguna milli Reykjadalsár og Hvítár. Hann bjó á Breiðabólstað.
  • Rauður nam land sunnan Reykjadalsár frá Rauðsgili til Gilja. Hann bjó að Rauðsgili.
  • Grímur nam land frá Giljum til Grímsgils og bjó við Grímsgil.
  • Þorkell kornamúli nam ásinn upp frá Kollslæk til Deildargils og bjó í Ási.
  • Úlfur Grímsson, sonur Gríms háleyska, nam land milli Hvítár og jökla. Hann bjó að Geitlandi.

Við Hvítá í Borgarfirði voru mörk fjórðunga. Héðan rekur Landnáma sig áfram réttsælis um Vestfirðingafjórðung, Norðlendingafjórðung og Austfirðingafjórðung. Við Jökulsá á Sólheimasandi er aftur komið í Sunnlendingafjórðung.

  • Þrasi Þórólfsson nam land milli Jökulsár á Sólheimasandi og Kaldaklofsár. Hann bjó á Eystri-Skógum.
  • Hrafn heimski Valgarðsson nam land milli Kaldaklofsár og Lambafellsár og bjó að Rauðafelli eystra.
  • Ásgeir kneif nam land milli Lambafellsár og Seljalandsár og bjó að Auðnum.
  • Þorgeir hörski Bárðarson keypti land af Ásgeiri kneif milli Lambafellsár og Írarár. Hann bjó í Holti.
  • Ásgerður Asksdóttir nam land milli Seljalandsmúla og Markarfljóts og bjó norðan í Katanesi.
  • Þórólfur Asksson nam land að ráði Ásgerðar fyrir vestan Fljót og bjó í Þórólfsfelli.
  • Ásbjörn Reyrketilsson nam land ofan Krossár austan Markarfljóts og kallaði Þórsmörk.
  • Steinfinnur Reyrketilsson nam land með Ásbirni bróður sínum og bjó á Steinfinnsstöðum.
  • Ketill hængur Þorkelsson nam öll lönd milli Þjórsár og Markarfljóts, einkum milli Rangár og Hróarslækjar og bjó að Hofi.
  • Sighvatur rauði nam land með ráði Ketils hængs í Einhyrningsmörk ofan Deildarár. Hann bjó í Bólstað.
  • Jörundur goði Hrafnsson byggði fyrir vestan Fljót þar sem síðar hétu Svertingsstaðir.
  • Þorkell bundinfóti nam land með ráði Ketils hængs umhverfis Þríhyrning og bjó undir fjallinu.
  • Baugur nam Fljótshlíð alla með ráði Ketils hængs og bjó á Hlíðarenda.
  • Hildir nam Landeyjar ásamt systkinum sínum og bjó í Hildisey.
  • Hallgeir nam Landeyjar ásamt systkinum sínum og bjó í Hallgeirsey.
  • Ljót nam Landeyjar ásamt bræðrum sínum og bjó á Ljótarstöðum.
  • Dufþakur fékk land af Katli hæng og bjó í Dufþaksholti.
  • Ormur ánauðgi Bárðarson byggði fyrst Vestmannaeyjar.
  • Eilífur nam Odda upp til Reyðarvatns og Víkingslækjar.
  • Björn nam land upp með Rangá og bjó í Svínhaga.
  • Kolur Óttarsson nam land fyrir austar Reyðarvatn og Stotalæk og fyrir vestan Rangá. Hann bjó að Sandgili.
  • Hrólfur rauðskeggur nam Hólmslönd öll milli Fiskár og Rangár. Hann bjó að Fossi.
  • Þórunn nam Þórunnarhálsa alla.
  • Þorgeir Ásgrímsson keypi Oddalönd af Hrafni Hængssyni milli Rangár og Hróarslækjar. Hann bjó í Odda.
  • Þorsteinn tjaldstæðingur Ásgrímsson nam land að ráði Flosa fyrir ofan Víkingslæk og bjó að Skarði.
  • Flosi Þorbjarnarson nam Rangárvelli austan Rangár.
  • Ketill einhendi Auðunarson nam Rangárvelli ytri fyrir ofan Lækjarbotna. Hann bjó að Á.
  • Ketill aurriði nam land með Þjórsá og bjó á Ytri-Völlum.
  • Ormur auðgi Úlfsson nam land með Rangá að ráði Ketils einhenda og bjó í Húsagarði.
  • Þorsteinn lunan nam efri hluta Þjórsárholta ásamt Þorgilsi syni sínum. Þeir bjuggu í Lunansholti.
  • Ráðormur nam land milli Rangár og Rauðalækjar og bjó í Vetleifsholti.
  • Jólgeir nam land milli Rauðalækjar og Steinsholts og bjó á Jólgeirsstöðum.
  • Áskell hnokkan Dufþaksson nam land milli Steinslækjar og Þjórsár. Hann bjó í Áskelshöfða.
  • Þorkell bjálfi eignaðist lönd milli Rangár og Þjórsár og bjó í Háfi.
  • Loftur Ormsson nam land vestan Þjórsár til Rauðár. Hann bjó í Gaulverjabæ.
  • Þorviður Úlfarsson fékk land af Lofti á Breiðumýri og bjó í Vorsabæ.
  • Þórarinn Þorkelsson nam land með Þjórsá milli Skúfslækjar og Rauðár.
  • Hásteinn Atlason nam land milli Rauðár og Ölfusár til Fyllarlækjar. Hann bjó á Stjörnusteinum.
  • Hallsteinn fékk ytri hluta Eyrarbakka af Hásteini mági sínum. Hann bjó á Framnesi.
  • Þórir Ásason nam Kallnesingahrepp allan og bjó á Selfossi.
  • Hróðgeir spaki nam Hraungerðingahrepp ásamt Oddgeiri.
  • Oddgeir nam Hraungerðingahrepp ásamt Hróðgeiri og bjó í Oddgeirshólum.
  • Önundur bíldur nam land austan Hróarslækjar og bjó í Önundarholti.
  • Össur hvíti Þorleifsson nam Holtalönd milli Þjórsár og Hraunslækjar. Hann bjó í Kampaholti.
  • Ólafur tvennumbrúni nam öll Skeið milli Þjórsár, Hvítár og Sandlækjar. Hann bjó á Ólafsvöllum.
  • Þrándur mjögsiglandi Bjarnarson nam land milli Þjórsár, Laxár, Kálfár og Sandlækjar. Hann bjó í Þrándarholti.
  • Ófeigur grettir Einarsson fékk land af Þorbirni laxakarli milli Þverár og Kálfár. Hann bjó á Ófeigsstöðum.
  • Þormóður skafti Óleifsson fékk land af Þorbirni laxakarli austan Kálfár og bjó í Skaftaholti.
  • Þorbjörn laxakarl nam Þjórsárdal allan og Gnúpverjahrepp til Kálfár. Hann bjó fyrst í Miðhúsum en svo í Haga.
  • Þorbjörn jarlakappi keypti land af Mávi milli Selalækjar og Laxár og bjó að Hólum.
  • Már Naddoddsson nam Hrunamannahrepp ásamt Bröndólfi og bjó á Másstöðum.
  • Bröndólfur Naddoddsson nam Hrunamannahrepp ásamt Mávi og bjó að Berghyl.
  • Þorbrandur Þorbjarnarson nam land milli Stakksár og Kaldakvíslar og efri hluta Hrunamannahrepps. Hann bjó í Haukadal
  • Ásbrandur Þorbrandsson nam land með föður sínum og bjó í Haukadal.
  • Eyfröður gamli nam eystri tunguna milli Kaldakvíslar og Hvítár. Hann bjó í Tungu.
  • Drumb-Oddur kom með Eyfröði gamla. Hann bjó á Drumboddsstöðum.
  • Ketilbjörn gamli Ketilsson nam Grímsnes frá Höskuldslæk, Laugardal og Biskupstungur til Stakksár. Hann bjó á Mosfelli.
  • Ásgeir Úlfsson fékk Hlíðarlönd af Ketilbirni gamla og bjó í Ytri-Hlíð.
  • Eilífur auðgi Önundarson fékk Höfðalönd af Ketilbirni gamla og bjó í Höfða.
  • Grímur nam Grímsnes upp til Svínavatns. Hann bjó fyrst í Öndverðarnesi, síðan á Búrfelli.
  • Hallkell skoraði á Grím til landa og hafði sigur. Hann bjó í Hallkelshólum.
  • Þorgrímur bíldur nam öll lönd fyrir ofan Þverá og bjó að Bíldsfelli.
  • Steinröður Melpatrixson, leysingi Þorgríms bílds, eignaðist Vatnslönd. Hann bjó á Steinröðarstöðum.
  • Hrolleifur Einarsson nam land fyrir utan Öxará og bjó í Heiðabæ.
  • Ormur gamli Eyvindarson nam land milli Varmár, Þverár og Ölfusár. Hann bjó í Hvammi.
  • Álfur egðski nam öll lönd utan Varmár og bjó að Gnúpum.
  • Þórir haustmyrkur nam Selvog og Krísuvík.
  • Molda-Gnúpssynir byggðu í Grindavík.
  • Steinunn gamla fékk Rosmhvalanes fyrir utan Hvassahraun af Ingólfi frænda sínum.
  • Eyvindur fékk land af Steinunni frænku sinni milli Kvíguvogabjarga og Hvassahrauns.
  • Herjólfur Bárðarson fékk land af Ingólfi frænda sínum milli Reykjaness og Vogs.
  • Ásbjörn Össurarson nam land milli Hraunsholtslækjar og Hvassahrauns og bjó á Skúlastöðum.


[breyta] Sjá einnig:


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -