Lækjargata
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lækjargata er gata í miðbæ Reykjavíkur og dregur nafn sitt af læk sem rann upphaflega „opinn“ meðfram allri götunni, þ.e.a.s. frá Tjörninni til sjávar.
Lækjargata var upphaflega lítil gata, enda voru þar í fyrstu aðeins tvö hús. Hún var í þá daga kölluð Heilagsandastræti. Nafngiftin kom til vegna þess að í öðru þessara húsa bjó biskup og í hinu dómkirkjuprestur. Smám saman, þegar íbúafjöldinn í Reykjavík jókst, lengdist gatan suður með læknum alla leið að Tjörninni. Lækurinn rann á fyrstu árum Reykjavíkur á milli hlaðinna bakka, en Lækjargata var þá eina „breiðgata“ miðbæjarins. Steinbrú lá þá yfir lækinn niður af Bankastræti. Þegar lækurinn var settur í bunustokk og farvegur hans fylltur, árið 1911, breikkaði gatan um helming.