Kennimynd
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kennimynd (skammstafað sem km.) eru frumhlutar sagnorða sem aðrar beygingarmyndir eru dregnar af og sú mynd sem oft er gefin upp í orðabókum. Afleiddar myndir eru dregnar af kennimyndum sagnorða. Af fyrstu kennimynd eru nútíðarmyndir sagnarinnar dregnar. Af þriðju kennimynd sterkra sagna og núþálegra sagna er t.d. dreginn viðtengingarháttur þátíðar.
Efnisyfirlit |
[breyta] Kennimyndir veikra sagna
Fyrsta kennimynd | Önnur kennimynd | Þriðja kennimynd |
---|---|---|
nafnháttur | fyrsta persóna eintala þátíð framsöguháttur | lýsingarháttur þátíðar |
Að borða | Ég borðaði | Ég hef borðað |
Að elska | Ég elskaði | Ég hef elskað |
- Hægt er að búa til viðtengingarhátt nútíðar (þótt ég borði) frá fyrstu kennimynd (að borða)
- Hægt er að búa til viðtengingarhátt þátíðar (þótt ég borðaði) frá annari kennimynd (ég borðaði)
[breyta] Kennimyndir sterkra sagna
Fyrsta kennimynd | Önnur kennimynd | Þriðja kennimynd | Fjórða kennimynd |
---|---|---|---|
nafnháttur | 1. persóna eintala þátíð framsöguháttur | 1. persóna fleirtala þátíð framsöguháttur | lýsingarháttur þátíðar |
Að finna | Ég fann | Við fundum | Ég hef fundið |
- Hægt er að búa til viðtengingarhátt nútíðar (þótt ég finni) frá fyrstu kennimynd (að finna)
- Hægt er að búa til viðtengingarhátt þátíðar (þótt ég fyndi) frá þriðju kennimynd (við fundum)
[breyta] Kennimyndir núþálegra sagna
Fyrsta kennimynd | Önnur kennimynd | Þriðja kennimynd | Fjórða kennimynd |
---|---|---|---|
nafnháttur | 1. persóna eintala nútíð framsöguháttur | 1. persóna eintala þátíð framsöguháttur | lýsingarháttur þátíðar |
Að kunna | Ég kann | Ég kunni | Ég hef kunnað |
- Hægt er að búa til viðtengingarhátt nútíðar (þótt ég kunni) frá fyrstu kennimynd (að kunna)
- Hægt er að búa til viðtengingarhátt þátíðar (þótt ég kynni) frá þriðju kennimynd (ég kunni)
[breyta] Kennimyndir ri-sagna
Fyrsta kennimynd | Önnur kennimynd | Þriðja kennimynd |
---|---|---|
nafnháttur | fyrsta persóna eintala þátíð framsöguháttur | lýsingarháttur þátíðar |
Að snúa | Ég sneri[1] | Ég hef snúið |
Að gróa | Ég greri'[1] | Ég hef gróið |
Að núa | Ég neri'[1] | Ég hef núið |
Að róa | Ég reri'[1] | Ég hef róið |
- Hægt er að búa til viðtengingarhátt nútíðar (þótt ég snúi) af fyrstu kennimynd (að snúa)
- Hægt er að búa til viðtengingarhátt þátíðar (þótt ég seri) af annarri kennimynd (ég sneri)
[breyta] Tengt efni
- Kenniföll (hliðstæða nafnorða)
- Orsakasögn
- Tannhljóðsviðskeyti
- Hljóðskipti
[breyta] Neðanmálsgreinar
- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 ri-sagnir eru ritaðar með e í annarri kennimynd (skv. tilskipun menntamálaráðuneytisins), þó svo að framburðurinn sé með é.