Wikipedia:Hvernig á að lesa flokkunarfræðilegar upplýsingar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Selaætt | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Pardusselur
|
||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
|
||||||||||||
Ættkvíslir | ||||||||||||
|
Flokkunarfræðilegar upplýsingar birtast í sérstakri töflu sem á að fylgja greinum um lífverur á Wikipediu. Taflan inniheldur upplýsingar um vísindalega flokkun lífverunnar.
Töflunni er skipt í nokkra hluta:
- Bakgrunnslitur á fyrirsögnum í töflunni er einkennandi fyrir ríkið: bleikur fyrir dýraríkið, grænn fyrir jurtaríkið, blár fyrir svepparíkið o.s.frv.
- Efst er að finna algengasta heiti lífverunnar á íslensku
- Fyrir neðan heitið geta komið fram upplýsingar um ástand stofns
- Síðan kemur gjarnan mynd sem sýnir lífveruna
- Vísindaleg flokkun lífverunnar fylgir, sem hefst yfirleitt á ríki eða veldi og rekur sig svo gegnum nánari skilgreiningar.
- Ef um tegund er að ræða kemur tvínefni tegundarinnar neðst
- Hér á eftir getur birst kort sem sýnir dreifingu lífverunnar eða flokksins (mörg slík kort er að finna á Wikimedia Commons).
- Ef um flokk er að ræða (ættkvísl eða ætt t.d.) kemur neðst listi yfir þá hluta sem tilheyra flokknum.
Venja er að nota íslensk heiti með samsvarandi latneskum heitum skáletruðum í sviga á eftir. Ef ekkert íslenskt heiti er til er latneska heitið notað eitt sér og birtist þá skáletrað án sviga.