Hallveigarstaðir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hallveigarstaðir er húsið að Túngötu 14 í Reykjavík. Það var byggt af kvennasamtökum og ætlað að vera miðstöð þeirra. Kvennaheimilið var vígt 1967. Það var nefnt Hallveigarstaðir í minningu Hallveigar Fróðadóttur. Kvenfélagasamband Íslands, Bandalag kvenna í Reykjavík og Kvenréttindafélag Íslands hafa aðstöðu í húsinu. Húsið var lengi þungur fjárhagslegur baggi á íslenskum kvennasamtökum. Það er að mestu leyti í útleigu m.a. til sendiráðs Kanada, en samkomusalur er í kjallara hússins. Þar hafa farið fram margar kvennasamkomur.