Geld þolmynd
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Geld þolmynd er það nefnt þegar sögnin í þolmynd tekur ranga beygingu. Dæmi:
- Hann svarar öllum spurningum sem fyrir hann er lagt.
Spurningar eru ekki hvorugkyn eintölu, heldur kvenkyn fleirtölu. Rétt er að segja: Hann svarar öllum spurningum sem fyrir hann eru lagðar.
- Gert var grein fyrir því.
Grein er kvenkyns, því á að standa þarna: Gerð var grein fyrir því. [1]
- Þeir eiga mörg góð lög sem er tileinkað sólinni.
Lögin eru hvorugkyn fleirtölu, því á að standa þarna: Þeir eiga mörg góð lög sem eru tileinkuð sólinni. [2]