Friedrich Engels
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Friedrich Engels (28. nóvember 1820 – 5. ágúst 1895) var þýskur stjórnmálaheimspekingur sem átti þátt í þróun kommúnismans ásamt Karli Marx. Engels samdi Kommúnistaávarpið ásamt Marx og ritstýrði og gaf út síðari tvö bindi Auðmagnsins eftir lát Marx. Engels var sonur vel stæðs klæðaframleiðanda. Hann varð ungur fyrir áhrifum frá heimspeki Hegels.