Bjarni Thorsteinsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bjarni Thorsteinsson (f. 31. mars 1781, d. 3. nóvember 1876) var amtmaður í vesturamti á árunum 1821-1849. Hann hafnaði þeirri hugmynd að Ísland skyldi fá innlent stéttaþing þegar sú hugmynd kom fyrst fram um 1831. Hann varð síðan fyrsti forseti hins nýja alþingis þegar það var endurreist 1844, eftir að hafa verið lagt niður af Dönum árið 1799. Bjarni stofnaði einnig Hið íslenska bókmenntafélag ásamt öðrum.