Berg
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- „Berg“ getur einnig átt við mannsnafnið Berg.
Berg er í bergfræði náttúrulegt samansafn steinda og/eða steindlíkja, berg er flokkað eftir steinda og efnainnihaldi þess, eftir því hvernig það var myndað og eftir áferð þess. Bergi er skipt í þrjá meginflokka: storkuberg, setberg og myndbreytt berg. Sú vísindagrein sem fæst við rannsóknir á bergi nefnist bergfræði.