Basalt
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Basalt er basískt storkuberg (gosberg) samansett af plagíóklasi, ólivíni, pýroxeni og seguljárnsteins-steindum. Gjarnan er í því einnig basaltgler. Basalti er skipt í þrjá flokka eftir gerð; blágrýti, grágrýti og móberg. 70% af heildaryfirborði jarðar er talið vera basalt. Við eldgos úr möttli jarðar myndast basalt.