Banani
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Banani er ávöxtur bananaplöntunnar. Helstu ræktunarsvæði þeirra eru nálægt miðbaug jarðar. Bananaplantan er fjölær og ein stærsta planta í heimi sem ekki er tré. Bananaplantan blómstrar og hvert blóm verður að banana. Þau vaxa í röðum og inniheldur hver röð um 15 til 30 banana. Á hverjum stilk plöntunar eru 7 til 10 raðir.
Þegar plantan er um 9 mánaða eru bananarnir hirtir og plantan skorin niður. Hún vex síðan aftur úr sömu rótinni, líkt og rabarbari. Hýði banananna er grænt þegar þeir eru óþroskaðir og nýtíndir, en þeir gulna eftir því sem þroskinn er meiri.
Bananahýði er mjög sleipt og í fjölmörgum myndasögum og bröndurum má sjá menn renna til og detta eftir að hafa stigið á slíkt.