Argumentum ad baculum
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Argumentum ad baculum (kylfurök eða valdrök) er rökvilla sem gengur út á það að hóta valdi þeim sem ekki fellst á rökstuðning viðkomandi, sumir heimspekingar halda því þó fram að alls ekki sé um rökvillu að ræða heldur gagnlega röksemdafærslu sem sé nýtileg í mörgum tilfellum.
Dæmi um rökfærslu af þessu tagi væri:
- „Ef þú trúir ekki á Guð, þá mun Hann ljósta þig með eldingu“
Argumentum ad baculum er ein gerð af argumentum ad consequentiam.