Andrei Nikolaevitsch Kolmogorov
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Andrei Nikolaevitsch Kolmogorov (1903 – 1987) var rússneskur stærðfræðingur, sem stundaði rannsóknir á mörgum sviðum stærðfræði, þar á meðal í líkindafræði. Hann er þekktastur fyrir að hafa komið líkindafræði á fastan grundvöll með því að tengja hana við mengjafræði og beita táknmáli mengjafræðinnar á líkindi.