Örn (mannsnafn)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fallbeyging | |
Nefnifall | Örn |
Þolfall | Örn |
Þágufall | Erni |
Eignarfall | Arnar |
Notkun núlifandi¹ | |
Fyrsta eiginnafn | 674 |
Seinni eiginnöfn | 3.927 |
|
|
|
Örn er íslenskt karlmannsnafn.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Mannanafnanefnd var gerð beiðni um að eiginnafnið Örn væri tekið til greina og fært á mannanafnaskrá sem kvenkynsnafn. Var niðurstaða Mannanafnanefndar að nafnið Örn teldist til karlmannsnafns og var beiðninni hafnað þann 18. desember 2001.[1] Sjá einnig mannanöfnum hafnað af Mannanafnanefnd.
[breyta] Dreifing á Íslandi
Gögnin eru unnin upp úr Þjóðskrá Íslands fyrir árabilið 1950-2006. Dökku súlurnar sýna fjölda nafngifta fyrir nafnið sem fyrsta nafn og ljósu súlurnar sem seinna eiginnafn það árið. Hlutfallstölur eru reiknaðar út frá fjölda nafngifta af samþykktum íslenskum nöfnum, hlutfall seinna nafns er reiknað út frá heildarfjölda seinni eiginnafna það árið.
[breyta] Þekktir nafnhafar
- Örn Arnarson
- Örn Árnason
- Markús Örn Antonsson
- Einar Örn Benediktsson
- Gísli Örn Garðarsson
- Örn Bárður Jónsson
- Ívar Örn Sverrisson
- Egill Örn Rafnsson
- Eiríkur Örn Norðdahl
- Reynir Örn Leósson
- Hólmar Örn Rúnarsson
- Ingólfur Örn Björgvinsson
- Ævar Örn Jósepsson
[breyta] Heimildir
- Mannanafnaskrá. Skoðað 10. nóvember, 2005.
- Þjóðskrá Íslands, nóvember 2005.