Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum (1857-1933) fæddist á Sauðadalsá á Vatnsnesi og ólst upp þar á nesinu. Hún lærði ljósmóðurfræði hjá Jónassen lækni í Reykjavík og sigldi síðan til framhaldsnáms í Kaupmannahöfn. Eftir heimkomuna var hún um fimm ára skeið ljósmóðir í Reykjavík en giftist þá Halldóri Guðmundssyni og fluttu þau norður að Hlöðum í Hörgárdal og við þann bæ er Ólöf jafnan kennd. Þar bjó hún yfir þrjátíu ár. Eftir það flutti hún til Akureyrar og síðustu árin bjó hún í Reykjavík. – Ólöf orti talsvert og skrifaði sögur og ævintýri. Þá skrifaði hún minningar frá bernskuárum sínum á Vatnsnesi og lýsir þar vel örbirgðinni og allsleysinu sem hún var alin upp við.
[breyta] Heimildir
- Sýnisbók íslenskra bókmennta frá 1550 til 1900, Kristján Eiríksson tók saman, Reykjavík 2003.
- Heimir Pálsson. Sögur, ljóð og líf. Vaka-Helgafell, 1998. ISBN 9979-2-1306-X Blaðsíða 39