Íslensk erfðagreining
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Íslensk erfðagreining er íslenskt fyrirtæki sem þróar lyf byggt á rannsóknum í líftækni. Fyrirtækið var stofnað árið 1996. Kári Stefánsson er stjórnarformaður og forstjóri.
Fyrirtækið vinnur m.a. að þróun lyfja við:
- hjartaáföllum
- æðakölkun
- æðasjúkdómum
- geðklofa
- sykursýki II
- offitu
Íslensk erfðagreining hefur komið sér upp og gert aðgengilega Íslendingabók, gagnagrunn með ættfræðilegar upplýsingar um alla þá Íslendinga sem heimildir eru um.