Íronía
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Írónía eða háð (einnig nefnt háðhvörf eða launhæðni) er stílbragð sem felst í að átt er við annað en það sem sagt er, gjarnan hið gagnstæða.
[breyta] Tegundir háðs
- Tragískt eða dramatískt háð er þegar orð persónu í leikriti rætast á annan hátt en hún hugði, oft þannig að áhorfendur átta sig á hvernig komið er. Þekkt dæmi er í Oídípúsi konungi eftir Sófókles. Þar óttast Oídípús að banamaður Laíosar gæti einnig lagt hönd á Oídípús sjálfan. Þessi orð rætast þegar Oídípús uppgötvar að hann varð sjálfur Laíosi að bana og blindar sig.
- Sókratískt háð er þegar einhver þykist vera fávís en spyr spurninga sem smám saman leiða viðmælandann í ógöngur.
- Rómantískt háð eða tvísæi er þegar byggð er upp ákveðin (rómantísk) hugsýn og hún síðan rifin niður.
[breyta] Heimildir
- Jakob Benediktsson (1983). Hugtök og heiti í bókmenntafræði. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands.