Steind
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Steind (eða steinefni eða steintegund) er í steindafræði náttúrulegt efnasamband sem myndast við jarðfræðilegt ferli. Hugtakið nær ekki aðeins yfir efnasamsetningu heldur einnig yfir uppbyggingu. Samsetning steinda getur verið allt frá hreinum frumefnum og einföldum söltum, allt upp í flókin silíköt sem geta haft þúsundir þekktra afbrigða (lífræn sambönd eru venjulega undanskilin).
Steindir eru alltaf með sömu efnasamsetningu og jafna kristallauppbyggingu sem endurtekur sig í það óendanlega.
[breyta] Algengar steindir í íslensku bergi
- Kvars
- Feldspat
- -Ortóklas
- -Plagíóklas
- Glimmer
- Pýroxen
- Ólivín
- Gler
- Apatit
- Seguljárnsteinn