See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Róm - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Róm

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Hringleikahúsið í Róm (Kólosseum)
Hringleikahúsið í Róm (Kólosseum)

Róm er höfuðborg Ítalíu og höfuðstaður héraðsins Lazio. Borgin stendur við Tíberfljót og reis upphaflega á sjö hæðum á vestri bakka fljótsins gegnt Tíbereyju; Palatínhæð, Aventínhæð, Kapítólhæð, Kvirinalhæð, Viminalhæð, Eskvinalhæð, Janikúlumhæð. Hún umlykur borgríkið Vatíkanið þar sem höfuðstöðvar kaþólsku kirkjunnar eru og aðsetur páfans, æðsta stjórnanda hennar. Þar var til forna höfuðborg rómverska heimsveldisins, og þar með menningarleg höfuðborg Miðjarðarhafssvæðisins. Róm er stundum kölluð „borgin eilífa“.

Í dag búa í Róm rúmar tvær og hálf milljónir manna. Borgarstjóri (frá 2001) er Walter Veltroni. Öll stjórnsýsla ítalska ríkisins, utan héraðsþing sjálfstjórnarhéraðanna fimm er í borginni. Höll forseta lýðveldisins er í Kvirinalhöll, sem áður var bústaður páfa. Að auki hýsir borgin ýmsar mikilvægar alþjóðastofnanir, eins og Alþjóða matvælastofnunina (FAO).

Efnisyfirlit

[breyta] Saga Rómar

[breyta] Höfuðborg Ítalíu

Róm tók við hlutverki höfuðborgar Ítalíu af Flórens þegar hersveitir konungsríkisins hertóku hana 20. september árið 1870. Áður hafði hún verið höfuðstaður Páfaríkisins sem náði yfir miðhluta Ítalíuskagans frá tímum Karlamagnúsar. Við hertökuna lýsti páfi sig fanga í Vatíkaninu og neitaði að viðurkenna ítalska ríkið, hótaði jafnvel bannfæringu þeim sem tækju þátt í kosningum á Ítalíu. Málið var óleyst þar til Lateran-samningarnir voru gerðir milli páfa og ríkisstjórnarinnar (undir stjórn fasista) árið 1929.

Undir stjórn Mússólínís var ráðist í ýmsar róttækar og mjög umdeildar breytingar á borginni, gömul hverfi rifin til að skapa pláss fyrir breiðgötur og torg sem hæfðu nútíma höfuðborg, en borgin hafði vaxið mjög hratt eftir að hún var gerð að höfuðborg.

Í stríðinu varð borgin fyrir miklum loftárásum, en var þó ekki eyðilögð. Hún féll í hendur bandamanna 6. júní 1944 eftir stutt tímabil þýskrar hersetu (stjórn fasista féll 1943).

[breyta] Staðarnafnið Róm á íslensku

Róm er kvenkyns orð á íslensku, en var haft í hvorugkyni hér áður fyrri (annaðhvort skrifað Róm eða Rúm). Þá var sagt að fara til Róms, ekki til Rómar. Róm er nútildags oftast skrifað Rómar í eignarfalli. Róma er gamalt heiti á Róm. En stundum var Róma haft aðeins um borgarsvæðið norðan við Tíber (sem á íslensku var nefnd Tífur).

Róma heitir fyrir (norðan) Tífur, en Latran fyrir sunnan, en þó allt Rómaborg.

Rétt er að skrifa Rómaborg, en ekki Rómarborg (og engin dæmi um það í orðabókum) og er nefnd skilgreinandi samsetning. Eða bandstafssamsetning, eftir því hvernig menn líta á samsetninguna. [1]

[breyta] Tengt efni

  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.


Á öðrum tungumálum


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -