Lissabon
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lisbon (Lisboa á portúgölsku) er staðsett 38°43' norður, 9°8' vestur, sem gerir hana að vestustu höfuðborg á meginlandi Evrópu. Hún er jafnframt staðsett á vesturhluta Portúgals, við Atlantshafið og þar sem áin Tagus rennur í haf. Heildarsvæði borgarinnar er 84,6 km². Ólíkt mörgum stórborgum eru borgarmörk Lissabon þröngt skilgreind utan um sögufræga hluta borgarinnar. Þetta gerir það að verkum að allmargar borgir eru í kringum Lissabon, t.d. Loures, Odivelas, Amadora og Oeiras, þrátt fyrir að tilheyra með réttu Lissabon.
Hinn sögufrægi hluti Lissabon nær yfir sjö mjög brattar hæðir (jafnvel vélhjól komast ekki alltaf upp þær). Vesturhluti borgarinnar samanstendur af einum stærsta náttúrugarði í þéttbýli í Evrópu (garðurinn er nálægt 10 ferkílómetrar að flatarmáli)