Lambda
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lambda (hástafur: Λ, lágstafur: λ) er ellefti bókstafurinn í gríska stafrófinu. Stafir sem hafa þróast frá stafnum eru hið rómverska L og kýrillíska El (Л, л). Í nýgrísku er nafn stafsins lambda (Λάμδα) borið fram „lamða“ en stafurinn sjálfur er borinn fram eins og hið rómverska L. Í gríska númerakerfinu hefur hann gildið 30.