Konráð Gíslason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Konráð Gíslason (3. júlí 1808 - 4. janúar 1891) var íslenskur málfræðingur og einn Fjölnismanna. Hann var brautryðjandi í íslenskri orðabókargerð, samdi m.a. Danska orðabók (1851) og átti mikinn þátt í íslensk-enskri orðabók sem kennd er við R. Cleasby og Guðbrand Vigfússon. Hann rannsakaði fornmálið og gerði fyrstur grein fyrir muninum á íslensku fornmáli og nútímamáli í ritinu „Um frumparta íslenzkrar túngu í fornöld“ (1846). Þá gaf Konráð út fornrit, m.a. Njálu (1875-1889) þar sem hann valdi saman texta úr ólíkum handritum eftir því sem honum þótti fara best. Konráð vildi laga stafsetningu að framburði en hugmyndir hans á því sviði náðu aldrei fótfestu.