Heyrnarleysi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipedia. Skoðaðu sýnigreinar og grein um nafnavenjur til að bæta hana. |
Heyrnarleysi er fötlun þar sem viðkomandi getur ekki heyrt. Skylt hugtak er heyrnarskerðing þar sem geta að einhverju leyti heyrt, en illa þó.
Heyrnarleysi og heyrnarskerðing er skilgreind út frá mælingum sem segja til um hversu illa viðkomandi heyrir. Einstaklingur er greindur heyrnarskertur ef heyrn hans er á bilinu 41 – 85 desibel. Slík skerðing hefur í för með sér að einstaklingurinn á erfitt með að skilja talmál, en getur nýtt sér heyrnartæki. Heyrnarlaus einstaklingur heyrir nánast ekki neitt. Heyrn hans er á bilinu 85 –100 desibel. Hann getur ekki skilið talað mál, þó svo hann noti heyrnartæki. Hann þarf því að nota táknmál í samskiptum sínum.
Heyrnarleysi fellur undir 2. grein laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992 og njóti þeirra réttinda og verða að gegna þeim skyldum sem lög þau kveða á um.
Sú hugmynd að heyrnarlausir séu ekki fatlaðir heldur tilheyri fyrst og fremst málminnihlutahópi nýtur vaxandi fylgis í vestræna heiminum.
Samfélag heyrnarlausra hefur vaxið upp af tengslum milli manna með sameiginlega reynslu sem felst ekki eingöngu í því að búa í hljóðum heimi, heldur talar það fólk táknmál og á sína sögu, menningu og listir.
Tvennt aðskilur heyrnarlausa sem málminnihlutahóp frá öðrum málminnihlutahópum. Annars vegar fá heyrnarlausir aðgang að máli sínu og menningu á mismunandi aldri, en það fer eftir því hvenær heyrnarleysið uppgötvast og hversu fljótt einstaklingurinn fer að læra táknmálið. Hins vegar tilheyra heyrnarlaus börn heyrandi foreldra öðrum menningarheimi en foreldrarnir.
[breyta] Heimildir
- Abercrombie, N., S.Hill og B.S.Turner. The Penguin dictionary of sociology (3. útg.). London: Penguin, 1994.
- Beynton, D. C.. Forbidden signs. Chicago: University of Chicago, 1998.
- Definitions. Skoðað 28.apríl, 2006.
- Culture. Skoðað 20.apríl, 2006.
- Garðar Gíslason. Kenningar og samfélag. Reykjavík: Mál og menning, 2000.
- About hearingloss. Skoðað 20.mars, 2006.
- Geertz, C. The interpretation of cultures. New York: Basic books, 1973.
- Giddens, A. Sociology (4. útg.). Cambridge: Polity Press, 2001.
- Lane, H., R.Hoffmeister og B. Bahan. A Journey into the deaf world. San Diego, California: DawnSignPress., 1996.
- Lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Skoðað 15. mars, 2006.
- Noel, J.. Developing multicultural educators. New York: Longman, 2000.
- Padden, C. og T. Humphries. Voices from a culture. London: Harvard University Press, 1989.
- Robertson, I. Félagsfræði. Reykjavík: Oddi hf., 1985.