Harry Potter og viskusteinninn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Harry Potter og viskusteinninn er fyrsta bókin um galdrastrákinn Harry Potter eftir J.K. Rowling. Bókin kom út á íslensku árið 1999 en heitir á frummálinu Harry Potter and the Philosopher's Stone. Bókaútgáfan Bjartur gaf bókina út á Íslandi.
Kvikmynd eftir bókinni var frumsýnd árið 2001. Daniel Radcliffe, Rupert Grint og Emma Watson fóru með aðalhlutverkin.