Hálslón
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hálslón er miðlunarlón Kárahnjúkavirkjunar og er myndað með stíflun á rennsli Jökulsár á Dal (Jökla), Kringilsá og Sauðá.
Stíflurnar sem mynda lónið eru Kárahnjúkastífa (193m há), Desjarárstífla (60m há) og Sauðárdalsstífla (25m há). Lokað var fyrir botnrás Kárahnjúkastíflu þann 28. september 2006 og þar með byrjað að safna vatni í lónið. Áætlað er að það nái fullri stærð í lok árs 2007.
Lónið verður stærst 57km2, 25km langt og 2km breitt og sveiflast vatnsyfirborð þess um allt að 75m þó svo sveiflan í meðalári sé mun minni. Nýtanlegt vatnsmagn fyrir rekstur virkjunarinnar eru 2100 gígalítrar og munu renna úr því 107m3/s niður í stöðvarhús virkjunarinnar í Teigsbjargi þaðan sem vatninu er beint í Jökulsá á Fljótsdal sem aftur rennur í Lagarfljót.