Gullna reyfið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gullna reyfið var hrútsreyfi úr gulli í grískri goðafræði. Þess var gætt af ógurlegum dreka en Jason, fyrirliði Argóarfara, náði því og flutti til Hellas.
Aþamant Eolosson, konungur Minýja í Orkomenos, átti við Nefele (= ský), konu sinni, tvö börn, soninn Frixos (= hið niðandi regn) og dótturina Helle (= hið lifandi ljós). Er Aþamant sneri baki við Nefele og kvæntist Ino, steig Nefele til himins og sendi landi Minýja hræðilegan þurrk. Ino vildi Frixos feigan. Taldi hún því mann sinn á að fórna honum Seifi, til þess að guðinn sendi aftur regn. Nefele sendi þá börnum sínum hrút með gullreyfi, og varð systkinunum undankoma auðið á baki hrútsins. Á flóttanum steyptist Helle af baki í sjóinn í sund það, er síðan er við hana kennt og kallað Hellespont. Frixos komst til Pontos. Liggur land það fyrir austan Pontos Evxinos eða Svartahaf. Fórnaði hann Seifi hinum gullna hrút og hengdi reyfið upp í lundi einum. Hélt síðan dreki einn ógurlegur vörð um það. Þaðan flutti Jason gullreyfið til Hellas.
[breyta] Heimildir
- Jón Gíslason, Goðafræði Grikkja og Rómverja