Guðjón Samúelsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Guðjón Samúelsson (16. apríl 1887 – 25. apríl 1950) var íslenskur arkitekt og byggingameistari ríkisins frá 1920 til dauðadags. Hann teiknaði margar af þekktustu byggingum landsins. Hann var mikill áhugamaður um skipulagsmál og sat í fyrstu skipulagsnefnd ríkisins sem sett var á fót árið 1921 og var einn af aðalhöfundum fyrsta Aðalskipulags Akureyrarkaupstaðar sem samþykkt var árið 1927. Hugmyndir Guðjóns um skipulag bæja gerðu ráð fyrir aðgreiningu atvinnusvæða og íbúðarsvæða sem þá var nýmæli.
[breyta] Helstu byggingar
- Aðalbygging Háskóla Íslands
- Akureyrarkirkja
- Eimskipafélagshúsið
- Gamla mjólkursamlagið í Borgarnesi
- Hallgrímskirkja
- Héraðsskólinn á Laugarvatni
- Hótel Borg
- Kristskirkja
- Aðalbygging Landsspítalans
- Listasafn Íslands
- Reykjavíkurapótek
- Rósinborg (Barnaskóli Akureyrar)
- Þjóðleikhúsið
- Sundhöllin