Gran Sasso
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gran Sasso | |
---|---|
Il Gran Sasso d'Italia |
|
Hæð: | 2.912 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning: | Abrútsi, Ítalíu |
Fjallgarður: | Appennínafjöll |
Gran Sasso (eða Il Gran Sasso d'Italia -- „stóri steinn“) er stærsta fjallið í Appennínafjallgarðinum á Ítalíu. Það er staðsett í héraðinu Abrútsi á Suður-Ítalíu. Á Gran Sasso eru tveir tindar; Corno Grande (stóra horn) og Corno Piccolo (litla horn), en á milli þeirra er syðsti jökull Evrópu. Fjallið var fyrst klifið árið 1573 af Francesco De Marchi frá Bologna.
Á fjallinu er þjóðgarður; Gran Sasso-þjóðgarðurinn.