Garðar (Grænlandi)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Garðar var aðalkirkjustaður og biskupssetur Grænlendinga hinna fornu. Þar er nú byggðakjarninn Igaliku sem þýðir „yfirgefna eldstæðið”. Garðar eru innst í Einarsfirði sem er næsti fjörður austan við Eiríksfjörð í miðri Eystribyggð.
Miklar rústir frá tímum norrænna manna er að finna á Görðum. Þar á meðal rústir krosskirkju sem byggð var úr sandsteini á 12. öld og mælist 27x16 metrar. Einnig rústir veislusalar sem var um 130 m² á stærð og fjós fyrir 60 kýr.
Í Grænlendinga þætti er sagt frá því að Sokki Þórisson, höfðingi á Brattahlíð, hafi lagt fram tillögu í byrjun 12. aldar að stofnað yrði biskupsdæmi á Grænlandi. Tillagan þessi fékk mikinn stuðning landsmanna og var lögð fyrir Sigurð Jórsalafara Noregskonung. Hann samþykkti þessa hugmynd og útnefndi munkinn Arnald í embættið. Hann var vígður biskup yfir Grænlandi í dómkirkjunni í Lundi 1124. Hann komst til Grænlands eftir mikla svaðilför 1126.
Bygging dómkirkju hófst um 1126 og var hún helguð heilögum Nikulási, verndara sæfara. Í norðurkapellu dómkirkjunnar er biskup grafinn. Á hægri hringfingri var biskupshringurinn og höndin hvíldi á biskupsstafnum, 143 cm langur stafur úr aski og með útskorið höfuð í rostungstönn. Mögulega er þar grafinn Jón biskup sem lést 1209.
[breyta] Biskupar á Görðum
Ýmis skjöl eru til um biskupa Grænlendinga hinna fornu sem safnað hefur verið í Grønlands Historiske Mindesmærker.
Í upphafi kristni voru kirkjurnar á Grænlandi eins og aðrar kirkjur á Norðurlöndum undir erkibiskupnum í Hamborg-Bremen en frá 1103 voru þær lagðar undir erkibiskupinn í Lundi. En frá 1152 voru kirkjurnar i Noregi, Mön, Orkneyjum, Færeyjum, Íslandi og Grænlandi undir erkibiskupinn í Niðarósi (núverandi Þrándheimi).
Arnaldur biskup þjónaði á Görðum fram til 1150 þegar hann snéri aftur til Noregs. Hann var þar vígður biskup á Hamar 1152. Jón Knútur tók við sem biskup og þjónaði á Görðum 1150 til 1186. Þriðji biskupinn á Görðum var Jón Árnason sem hafði viðnafnið Smyrill. Hann tók við embætti 1189. Á árunum 1202-1203 fór hann í ferð alla leið til Rómarborgar til að hitta páfa. Hann þjónustaði sem biskup á Görðum alt fram á dauðadag 1209 og var grafinn þar. Sennilega er það hann sem er grafinn í norðurkapellu dómkirkjunnar.
Eftirmaður Jóns Smyrils var Þór Helgi, hann kom þó ekki til Grænlands frá Noregi fyrr en 1212. Hann var biskup fram að dauðadegi 1230. Nikulás, eftirmaður hans var vígður 1234. Nikulás kom þó ekki til Grænlands fyrr en 1239 og hann lést 3 árum síðar. Ólafur biskup var vígður 1242 en tók ekki við embætti fyrr en 1247. Hann var á ferðum erlendis 1264-1280. Næst biskup var Þór Bokki sem kom til Garða 1289 og snéri aftur til Noregs 1309.
Árni biskup þjónustaði á Görðum frá 1315 fram til 1347. Fréttir bárust ekki greiðlega milli Grænlands og Noregs og varð það meðal annars til þess að Jón Skalli var vígður nýr biskup að Görðum 1343 en frétti síðar að Árni biskup var enn á lífi og gegndi sínu starfi. Jón Skalli fór því aldrei til Grænlands. Eftir að Árni biskup dó var ekki vígður nýr Grænlandsbiskup fyrr en 1368 þegar Álfur biskup fékk embættið. Hann var biskup á Görðum fram til 1378 og var hann síðast biskupinn sem þjónaði þar.
[breyta] Heimildir:
Grønlands Forhistorie, Gyldendal København, 2005. ISBN 87-02-01724-5